Svakalegi bókaormurinn

Bókaormur

 

Undanfarnar vikur höfum við í Seljaskóla unnið hörðum höndum að undirbúningi fyrir Svakalegu lestrarkeppnina sem nú stendur yfir um allt land. Við ákváðum að búa til svakalegan bókaorm í tilefni keppninnar. Hugmyndin með bókaorminum var að gera lestrarkeppnina að sameiginlegu verkefni alls skólans, einhverju sem við byggjum upp saman og sjáum bókstaflega vaxa á hverjum degi. Hver lesin stund og hver efnisræma skiptir máli og verður hluti af heildinni. Þannig vinnum við öll að sama markmiði, þvert á bekki og árganga og gerum lesturinn sýnilegan á skemmtilegan hátt.
Fyrir hvern klukkutíma sem nemendur lesa fá þeir efnisræmu sem þeir bæta í búk ormsins. Þannig stækkar hann og verður litríkari eftir því sem fleiri lestrarstundir safnast saman. 
Að baki svakalega bókaorminum liggur mikil vinna en listgreinakennararnir okkar snjöllu, þær Margrét Gyða og Hrafnhildur, hönnuðu hann og sköpuðu frá grunni. Ugo húsvörður smíðaði rammann sem heldur öllu saman. Síðan hafa nemendur tekið við og eru nú smám saman að fylla hann af öllum lesnu klukkutímunum sínum.
Það er ótrúlega gaman að sjá hversu mikið líf er þegar komið í orminn en við erum ekki hætt! Nú er rétt rúm vika eftir af keppninni og því um að gera að halda áfram að lesa, lesa og lesa. 
Hversu svakalega stór og litskrúðugur verður bókaormurinn okkar áður en keppninni lýkur?