Glymskrattinn í 7. bekk

Glymskrattinn sýning
Nemendur í 7. bekk frumsýndu í lok skólaárs sýninguna Glymskrattinn – ferðalag um tónlistarsöguna. Frumsaminn söngleikur sem sýnir þróun dans og tónlistar síðastliðin 100 ár. Handritið er samið af kennurum skólans.
 
Nemendum var skipt í ýmsa hópa eftir áhugasviðum og öll tóku þátt. Myndaðir voru leikhópar, danshópar, sönghópar, hópur tæknifólks, leikmyndahópar og þar fram eftir götunum.
 
Áhorfendur voru hreinlega dolfallnir yfir gæðum og glæsileika sýningarinnar! Nemendur áttu stórleik, dansinn var magnaður, söngurinn stórkostlegur og öll teymin stóðu sig með prýði. Flottir búningar vöktu athygli en Sandra danskennari saumaði og hannaði hluta þeirra sjálf.
 
Það er einnig gaman að segja frá því að í mars síðastliðinn komu til okkar í heimsókn menntamálaráðherrar frá ýmsum löndum, t.d. Svíþjóð, Litháen og Nýja Sjálandi sem og kenn­ara­for­ysta ýmissa þátt­töku­ríkja ISTP, alls 30 manns, og skoðaði Seljaskóla. Þá fengu þau meðal annars að fylgjast með dansæfingu þessa hóps og voru alveg heilluð - heimsóknin og dansæfingin rataði í kjölfarið í fjölmiðla. Það var ákaflega gaman að sýna kennaraforystu hvaðanæva að úr heiminum hluta af þessari flottu sýningu og hæfileikaríku nemendur okkar!
 
Magnað verkefni sem við í Seljaskóla erum ákaflega stolt af.