Sandra Ómarsdóttir sviðslistakennari í Seljaskóla tilnefnd til íslensku menntaverðlaunanna!

Sandra Ómars

 

Við í Seljaskóla erum ótrúlega stolt og glöð að segja frá því að Sandra Ómarsdóttir, frábæri sviðslistakennarinn okkar, hefur hlotið tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna í flokknum „Framúrskarandi kennari“!
 
Íslensku menntaverðlaunin eru veitt árlega við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í nóvember og eru ein verðlaun veitt í þessum flokki til kennara sem þykir hafa skarað fram úr og stuðlað að menntaumbótum með starfi sínu og við í Seljaskóla vitum sannarlega hvers vegna Sandra er tilnefnd!
Sandra hefur byggt upp einstaklega öflugt, lifandi og metnaðarfullt sviðslistastarf hér í Seljaskóla. Allir nemendur skólans sækja tíma hjá henni í sviðslistum, dansi og leiklist og á hverju ári taka heilir árgangar þátt í stórum og glæsilegum sýningum þar sem hver einasti nemandi fær hlutverk og tækifæri til að leggja sitt af mörkum.
 
Undanfarin ár hafa nemendur meðal annars sett upp sýningar á borð við Annie, Glymskrattann – ferðalag um tónlistarsöguna, Línu Langsokk, Ronju Ræningjadóttur, Mamma Mia!, Bláa hnöttinn, Konung ljónanna og Grease. Þar koma nemendur að verkefnunum á fjölbreyttan hátt sem leikarar, söngvarar, dansarar, tæknifólk og þátttakendur í öllu því skapandi ferli sem fylgir því að setja upp stóra sýningu.
 
Einn stærsti styrkur Söndru er þó hvernig hún nær til barna. Hún nær að virkja nemendur þvert á aldur, getu, tungumál og bakgrunn og skapa vettvang þar sem ólíkir styrkleikar fá að njóta sín. Nemendur sem ekki endilega finna sig í hefðbundnu bóknámi fá þar tækifæri til að uppgötva hæfileika sína, byggja upp sjálfstraust og upplifa þá ómetanlegu tilfinningu að framlag þeirra skipti máli. 
Metnaður Söndru nær líka langt út fyrir sjálfa kennsluna. Hún leggur ómælda vinnu í sýningarnar, saumar búninga, útvegar og býr til leikmuni, vinnur að sviðsmyndum og hugsar fyrir ótal smáatriðum. Um leið hefur hún einstakt lag á að fá kennara og annað starfsfólk með sér þannig að verkefnin verða að sameiginlegu sköpunarverki alls skólasamfélagsins.
 
Þetta starf hefur haft gríðarlega jákvæð áhrif á menningu Seljaskóla. Sýningarnar byggja upp samstöðu, gleði og stolt og efla um leið samvinnu, ábyrgð, hugrekki, tjáningu og félagsfærni nemenda. Þær eru orðnar órjúfanlegur og afar dýrmætur hluti af skólastarfinu okkar.
Sandra er hugmyndarík, skipulögð, ósérhlífin og full af sköpunarkrafti. Hún nálgast verkefnin sín af ástríðu og gleði, gerir miklar kröfur en mætir nemendum á sama tíma af hlýju og virðingu. Með starfi sínu sýnir hún á hverjum degi hversu öflugt afl listir geta verið í námi, inngildingu og skólaþróun.
 
Innilega til hamingju elsku Sandra!