Förustafir í Seljaskóla

förustafir skoðaðir

 

Náttúrufræðistofa unglingadeildar í Seljaskóla, með Evu Maríu náttúrufræðikennara í fararbroddi, hefur eignast sex förustafi (stick insect). Förustafir eru skordýr en það eru til margar tegundir af þeim erlendis. Förustafirnir í Seljaskóla eru indversk tegund sem unir sér vel í búri með næga fæðu og góðan raka. Nemendum stendur til boða að halda á förustöfum en þeir eru hægfara og dansa stundum til að herma eftir litlum greinum sem hreyfast í vindi. Þeir falla vel inn í náttúrulegt umhverfi sitt enda líta þeir út eins og litlar greinar en þeir þurfa því að hafa grein inni í búrinu til að hanga á. 
Nemendur í Seljaskóla læra að bera virðingu fyrir þessum skordýrum en förustafir eru viðkvæmir og það þarf að sýna mikla nærgætni þegar verið er að handleika þá. Förustafirnir eru ungir og munu vonandi koma til með að stækka og dafna enn frekar. Í dag fengu spenntir og áhugasamir nemendur í 2. bekk að skoða förustafina og handleika en þau áttu það öll sameiginlegt að sýna ávallt mikla nærgætni.