Opinn dagur í Seljaskóla

9. apríl 2025
Á morgun, miðvikudaginn 9. apríl, er opinn dagur í Seljaskóla.
Á opnum degi bjóðum við forráðamönnum nemenda að koma í skólann. Formleg dagskrá er frá 9:00 - 11:30.
Dagurinn er skertur skóladagur. Nemendur mæta 8:30 - 12:00 og gæsla er fyrir börn í 1. - 4. bekk sem skráð eru í frístund.
Á milli 8:30 - 9:00 verða nemendur með umsjónarkennurum sínum en eftir það í verkefnum víða um húsið.